Bankastjórar nýju ríkisbankanna

Það vakti furðu mína þegar ég sá í fréttunum í gær eða fyrradag, þar sem greint var frá bílakosti bankastjóranna í nýju ríkisbönkunum.

Þar voru sýndar glæsibifreiðar bankastjóranna sem voru í gömlu bönkunum. Tveir stífbónaðir Mercedes Bens jeppar. Ef fólk á að taka eitthvað mark á orðum ríkisstjórnarinnar um að landinn verði að herða sultarólina um að minnsta kosti þrjú eða fjögur göt, þá á að setja þessa bankastjóra og helstu yfirmenn þessara fyrirtækja á Skoda Oktavíu eða sambærilega bíla. Það sama finnst mér reyndar eiga við um ráðherrana. Ef þú ætlast til að tekið sé mark á orðum þínum, þá þarft þú að sýna gott fordæmi.

 Ég hvet ráðamenn þjóðarinnar til að sýna gott fordæmi í verki, ekki bara í orði.


mbl.is Ný bankaráð fyrir vikulok
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, til hvers að kasta olíu á eld? Er reiði almennings í landinu ekki nóg fyrir?

Nína S (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 18:53

2 identicon

Mér er sama um þessa jeppa en ekki sama að þetta fólk sem er búið að moka undir sig áður en allt fór á hausinn sé að keyra þá í raun ættu þeir ekki að hafa efni á reiðhjóli svo miklu stungu þeir undan. Okkur almenningi sem áttum þarna hlutabréf vorum ekki látin vita að gott væri að selja bréfin. Nei þeir sögðu ekki selja bréfin hækka en hvað gerðu þeir.

Guðrún (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 20:18

3 Smámynd: Hilmar Sigvaldason

Þakka þessar fínu athugasemdir. Það er alveg kristaltært að núna þarf ekki bara láglaunafólkið og millitekjufólkið að snúa bökum saman. Ef einhverjir eiga að sýna frumkvæði þá eiga þeir sem hafa haft það allt of gott hingað til taki á sig mesta skellinn. Mér líst vel á að setja kvenfólk í stjórnir bankanna, helst vildi ég sjá kvenfólk taka við stjórn í Seðlabanka Íslands hið fyrsta. Ég held að Davíð Oddsson geti með góðu móti, peningalega, sest í helgan stein.

Aðalatriðið er það að þeir sem hafa komið okkur íslendingum nánast á hausinn séu ekki í því starfi að rétta okkur við.

Hilmar Sigvaldason, 16.11.2008 kl. 22:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hilmar Sigvaldason
Hilmar Sigvaldason

Ég er áhugaljósmyndari, fæddur 1966

Þegar ég er ekki að leika mér með myndavélina eða annað skemmtilegt, stunda ég vinnu hjá Norðuráli á Grundartanga. Þar hef ég unnið frá því í maí 1998.

Þar áður starfaði ég hjá Samvinnubanka Íslands sem síðar varð Búnaðarbanki Íslands.

Mér leiðist ekkert að hlusta á tónlist með hljómsveitinni Pink Floyd og eins sæki ég tónleika hljómsveitarinnar Dúndurfréttir eins oft og kostur er. Hvet hvern þann sem hefur gaman af Pink Floyd að sækja tónleika Dúndurfrétta hið fyrsta.  ( Ég er ekki á prósentum frá Dúndurfréttum )

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband